Framkvæmdafréttir 7.maí

(þessi frétt er framhald af  þessari frétt)

Tími frá upphafi niðurrifs eldhúsinnréttingar: 67 dagar

Núverandi ástand gólfs:  Eldhús: Flott flotað gólf (smiður + Gunni flotuðu) -  Forstofa: Enn flottara flotað gólf :0)  (Gunni + ég flotuðum - óheyrilega montin af því ;0)  )  Búið að kaupa gólfefni.

Núverandi ástand veggja: Eldhús: Búið að loka veggjum með plötum og laga eftir millivegginn.  Búið að múra upp í steinsteypta vegginn að mestu (rafvirki á smá eftir áður en hægt að klára það).  Búið að spartla upp í flest göt, holur og misfellur, eftir að pússa eitthvað af því niður.  Eftir að froðufella inn í eitt gat og spartla þar yfir   Forstofa: Búið að rífa niður hanka og nagla, og laga veggi eftir það. Einnig búið að rífa niður nagla o.fl. í holinu, og laga eftir það.

Næstu skref: klára undirbúning undir málningu, grunna og síðan mála veggi.  SKAL klárast í vikunni!  Stefnt að gólflögn á föstudag :0) og þá má bara loksins fara að kaupa innréttingu! 

Íbúðin: Enn algjörlega í rúst

Matarræðið: Sama og síðast - aðkeyptur / örbylgjuhitaður, fyrir utan frábærar máltíðir hjá vinum og vandamönnum :0)

Áætluð verklok:  Ótrúlegt en satt, en það er farið að glitta í þau!  Vonandi hægt að byrja að púsla upp innréttingu í næstu viku.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég elska að stafsetja spartl og gips....

Steina (IP-tala skráð) 8.5.2007 kl. 12:10

2 Smámynd: Hófí

hehe ég hafði aldrei spáð i hvernig spartl væri skrifað, og sagði alltaf bara *spastl* eða eitthvað álíka, eins og ég hafði heyrt þetta sagt.  Svo benti mér einhver á að þetta væri skrifað svona (sel það ekki dýrara en ég keypti það) - og síðan hef ég bara ekki geta sagt það öðruvísi heldur! Gunni gerir endalaust grín að mér :0)

Hófí, 8.5.2007 kl. 13:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband