Færsluflokkur: Bloggar
Minn kæri vinur og yfir-veislustjóri, Snorri Hergill, var boðaður í viðtal vegna *ástandsins*, núverandi sambands á milli Breta og Frónbúa, á SkyNews á föstudaginn, og stóð sig bara skrambi vel.
Bloggar | 14.10.2008 | 10:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggar | 10.10.2008 | 09:12 (breytt kl. 09:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Og hér sjáiði hægri helminginn af nýja fína eldhúsinu mínu :0) (vinstri hliðin kemur þegar við erum búin að fínissera þar...)
Það er orðið fyllilega starfhæft, en við eigum eftir að setja flísar á veggina, ljós og kappa undir efri skápana og viftu yfir eldavélina, og svo sökkulplötur.
Erettekkifínt? :0)
Bloggar | 20.7.2007 | 11:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Nærri 5 mánuðir frá því hafist var handa, og loksins loksins er eldhúsið komið í almenna notkun - þ.e.a.s. á sunnudaginn bakaði ég holla og góða eplaköku í nýja ofninum handa Sigrúnu og Kim sem kíktu í heimsókn (hjóluðu til okkar úr Álfheimunum - ótrúlega dugleg!) og í gær var eldaður mexíkóskur matur á nýja helluborðinu!
Reyndar á enn eftir að setja hurðar fyrir 3 skápa, festa bak á einn og kaupa og setja skúffur inn í þriðja (búrskápinn), auk þess svo að setja sökkla og hækka upp í loft. Svo verður flísalagt milli skápa einhverntíma á næstunni, og eins á eftir að setja gólflista og laga skilin milli lita í lofti og á veggjum í forstofu og holi. Loks þarf að ákveða hvernig gluggasyllu skal setja, og sömuleiðis gardínur eða eitthvað fyrir gluggann.
Set inn myndir þegar allar skáphurðarnar eru komnar :0)
Bloggar | 17.7.2007 | 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mig langar að vera matargúrú eins og Nanna, og til að undirbúa mig, og vegna þess að hún er skemmtilegur bloggari, les ég iðulega bloggið hennar.
Í dag setti hún inn ansi skemmtilega uppskrift að Afrískum veiðimannapottrétt. Þetta er ekki meðal þeirra fjölmörgu uppskrifta sem ég er farin að hlakka til að elda í næstum-tilbúna nýja og flotta eldhúsinu mínu ;0)
Bloggar | 12.7.2007 | 11:40 (breytt kl. 11:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Svakalega finnst manni ótrúlegt að hitinn sé virkilega að fara niður í -22° á Celsius í Argentínu...
Ég reyndi þess vegna að finna uppruna þessarar fréttar og tókst ekki. Örsnögg könnun á hitastigi í Argentínu á weather underground http://www.wunderground.com/global/AG.html sýnir að lægsta hitastigið núna er einmitt 20° á Farenheit - sem eru -6° á Celsius, sem mér finnst mun trúlegri tala...
Getur einhver fundið þessa frétt á sínu upprunalega tungumáli?
[Uppfært 10.7.2007 kl 11.27]
Ívar Pálsson fann frétt á BBC News: http://news.bbc.co.uk/2/hi/americas/6286484.stm sem staðfestir þetta - vá!
![]() |
Fimbulkuldi í Suður-Ameríku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 10.7.2007 | 09:24 (breytt kl. 11:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
*hrollur* Mér finnst þetta http://www.mbl.is/mm/frettir/myndskeid.html?file_id=19792 bara óhugnarlegt...
...og fréttamanninum greinilega líka - takið eftir að þegar dóninn talar þá er það með svona perralegri rödd... uhhhuuuh.....
Bloggar | 9.7.2007 | 17:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mamma á kistu fulla af allskyns fötum, slæðum og fylgihlutum, og það eru fastir liðir þegar stórfjölskyldan kemur í mat að eldri stelpurnar (13 og 14 ára) klæða "litlu börnin" (til dæmis þessi sumarlegu og sætu í nýlegum pistli mínum) sem alls kyns verur og halda tískusýningu fyrir okkur "gamla liðið" á meðan við klárum að borða. Sýningin fer oft fram undir tónlist og háværum hlátri - og ekki síður þeirra sem klæða börnin í ;0)
Mamma á eðlilega meira af fyndnum kvenfötum (fötin af pabba held ég að teljist seint henta í svona leiki - a.m.k. ekki nema brotabrot af þeim), og því skjóta alls kyns sígaunakerlingar, fínar frúr, óperusöngkonur, gellur og fleiri fígúrur upp kollinum.
Í fyrridag kom Márus fram sem strandvarðargella (gamalt fjólublátt og úttroðið bikiní af mér, fín hálsfesti og gellu-svipur) og Márus Sparrow:
Bloggar | 6.7.2007 | 08:31 (breytt kl. 09:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég var á leið í vinnu um hálfátta í morgun þegar þýtur fram hjá mér skærgult fjórhjól! Ég var á ca 80, svo það hefur verið á minnst 90km hraða...
Veit einhver hvort fjórhjól eru lögleg í reykvískri umferð?
Eigið annars frábæran dag mín kæru :0)
H
Bloggar | 6.7.2007 | 08:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Á æðislegum sumardegi eins og í gær er fátt yndislegra en að taka með sér nesti og setjast í einhvern af litlu lundunum í grasagarðinum í Laugardalnum og njóta veðurblíðunnar og félagsskaparins.
Við gerðum það reyndar ekki - heldur settumst við við borð á sístækkandi svæði veitingastaðarins Café Flóra í Grasagarðinum og fengum okkur brauðdisk með pestó og hummus og fleira gott - og það var bara alveg jafn yndislegt! *Við* í þessu tilviki vorum ég, Márus, mamma, Alex frændi og Nadía frænka.
Eftir hjólreiðatúr um göngustíga dalsins - sem eru passlega breiðir fyrir verðandi hjólreiðakappa í þjálfun ;0) - og ævintýraleiðangra um falda stíga milli þéttra og *útlandalegra* trjáa og runna - tylltu frændsystkinin sér á bekk og stilltu sér upp fyrir myndatöku.
Þetta var afraksturinn :0)
Alex tók myndina.
Bloggar | 5.7.2007 | 13:54 (breytt kl. 14:15) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar